Föstudaginn 10. september kl. 14-17 verður síðari hluti barna- og unglingabókmenntahátíðarinnar Myndir úti í mýri haldinn í sal Norræna hússins en þá verður haldið málþing um tengsl myndskreytinga og texta í barna- og unglingabókum. Dagskráin er mjög spennandi og áhugaverð og meðal annars flytur doktor í Múmínálfafræðum fyrirlestur um myndir og texta í þeim góðu [...]
Nú tekur reyfarasumarinu mikla að halla og svei mér ef ég hef ekki ofgert mér í glæpasögunum í bili (sem er kannski ekki skrítið þar sem ég sit nú föl og fá með tuttugasta krimmann í skjálfandi höndunum). Þetta lesefni hefur ekki gert ofsóknaræði mínu mikinn greiða en jafnvel á mínum bestu stundum lít ég [...]
Glæpir eftir Ferdinand von Schirach hefði sennilega ekki vakið sérstakan áhuga minn ef ég hefði rekist á bókina úti í búð. Í káputextanum er innihaldið kynnt sem sannar sögur úr starfi „stjörnulögfræðings“. Síðastnefnda orðið virkar fráhrindandi á mig og þetta með sönnu sögurnar vakti upp hugrenningatengsl við dálkinn „sönn sakamál“ í DV og tímarit með [...]
The Shaking Woman, A History Of My Nerves er nýjasta bók Siriar Hustvedt. Á kápunni er vitnað í Oliver Sacks sem segir verkið ögrandi, fyndið, fræðandi og óvenjulegt. Mér finnst bókin um skjálfandi konuna hins vegar ekkert rosalega ögrandi og áhugaverð þó hún sé engan veginn alslæm.
Í lokaorðum kemur fram að upphaf bókarskrifanna hafi verið [...]
Skvísubókin Makalaus eftir Tobbu Marinós fjallar um Lilju Sigurðardóttur og ástarmál hennar. Lilja er 25 ára og vinnur í almannatengslum og markaðsmálum hjá fyrirtækinu Tækn. Hún er „nú alveg makalaus“ (hress og skemmtileg) og bókstaflega makalaus ung kona sem dreymir um að finna hinn fullkomna mann og hamingjuna.
Bókin er samtímasaga úr Reykjavík, málfar bókarinnar er [...]
Múmínálfabækurnar eru mörgum kærar og nýlega var stofnuð Facebook-síða þar sem hvatt er til að bækurnar verði endurútgefnar á íslensku. Mörghundruð manns hafa fagnað því framtaki. Þess vegna datt mér í hug að setja inn greinina hér fyrir neðan sem birtist í tímaritinu Börnum og menningu sem kom út í vor. Það eru ekki eintóm [...]
Bókin Female Chauvinist Pigs eftir Ariel Levy kom út árið 2005. Undirtitill bókarinnar er “Women and the Rise of Raunch Culture”, en Levy notar raunch culture til að lýsa menningu sem er gegnsýrð af fagurfræði og gildum kláms/kynlífsiðnaðarins, menningu sem einkennist ekki bara af því að konur eru hlutgerðar, heldur af því að þær [...]
Í skáldsögunni Sugarcane with Salt sem gefin var út árið 1989 segir höfundurinn, James Ng´ombe, sögu ungs malavísks læknis sem heldur “heim” til Malaví eftir átta ára námsdvöl í Englandi. Sagan er frábær lýsing á sjálfsmynd manns og þjóðar – hvernig allt breytist en þó ekki.
Ef sykurreyr er tekinn upp of snemma er af honum [...]
Í skyndilegu dugnaðarkasti (með tilliti til bloggskrifa) eða letikasti (með tilliti til BA-ritgerðarskrifa) ákvað ég að prjóna svolítið aftan við bókabúðarmeðmæli mín hér að framan og kynna tvær stikkprufur úr sarpi St. George´s Bookshop í Berlín, en þær eiga það sameiginlegt að fjalla um þessa miklu sögu- og menningarborg.
Aðra þeirra ætla ég rétt að nefna, [...]
Grein Þórdísar um bókabúðina Lello í Porto minnti mig á hvers konar vanræksla það er gagnvart lesendum þessarar bloggsíðu að vera ekki búin að koma á framfæri annarri frábærri bókabúð í annarri frábærri borg. Rétt eins og Berlín er ekki næstum jafn snoppufríð og Porto er enska bókabúðin St. George´s Bookshop ekki næstum jafn glæsileg [...]
Porto, næststærsta borg Portúgal, er staður sem gaman er að heimsækja, en þar eyddi ég nokkrum dögum í síðustu viku. Borgin er gömul og falleg, fólkið viðkunnanlegt og margt áhugavert að skoða (og svo auðvitað nóg af portvíni fyrir þá sem það kunna að meta). Í Porto er fallegasta bókabúð sem [...]
Fast á hæla Reyfara maí fylgir að sjálfsögðu Reyfara júní. Síðan skóla lauk um miðjan maí hef ég kastað frá mér í fússi nánast öllum bókum sem ekki innihalda alla vega eitt gróft morð – ég vil ekki sjá efnahagsbrot eða fíkniefnamisferli – morð skal það vera.
Ég hef fleygt mér skammlaust í faðm skandinavískra glæpahöfunda [...]
Íslenska sumarið loksins komið – steikjandi hiti í stofunni – dáldið kalt í garðinum – börn að leik fyrir utan svefnherbergisgluggann – vespur í vígahug fyrir innan hann og skólabækurnar rykfalla á kantinum á meðan glæpatíðnin ríkur upp – alla vega í sófanum hjá mér!
Nýjasta morðið sem þar var leyst er að finna í bókinni [...]
Sumir geta ekki án glæpasagna verið. Ég er ekki ein af þeim en stundum fæ ég fiðringinn, sérstaklega þegar tekur að vora, ekki veit ég af hverju það er, en svona er þetta bara. Og nú er komið vor og ég er búin að skella mér í gegnum tvær nýlegar, þýddar glæpasögur, það er annars [...]
Sítrónur og Saffran eftir Kajsu Ingemarsson er rólegheitabók, hentar vel til þess að taka upp í sumarbústað eða bara upp í rúm til að slappa af fyrir svefninn.
Sagan er um Agnesi, unga konu sem upplifir margt sem flestir upplifa eflaust einhvern tíma á ævi sinni, til dæmis það að missa vinnuna, kærasta og ástvin. Hún [...]
Í dag átti að vera fræðidagskrá um tengsl mynda og texta á barna- og unglingabókmenntahátíðinni Myndir úti í mýri í Norræna húsinu en því miður komst aðeins einn útlensku fræðimannanna til landsins (þið hafið kannski heyrt af þessu eldgosi) svo dagskránni sem átti að vera í dag, laugardag, verður frestað fram á haust.
Á morgun, sunnudaginn [...]
Ár hérans eftir Arto Paasilinna kom út árið 1975, en var gefin út í íslenskri þýðingu árið 1999. Ég fékk bókina að láni frá nágrannakonu minni fyrir löngu síðan og var loksins að koma mér að því að lesa hana.
Blaðamaðurinn Vatanen er í vinnuferð þegar hann keyrir á héraunga. Hann fer þá inn í [...]
Árleg vika bókarinnar hefst á morgun, miðvikudag, og af því tilefni er ýmislegt bókmenntatengt í gangi út um allt land og því vert að fylgjast vel með í fjölmiðlum, kíkja á bókasafnið og vera almennt með kveikt á öllum skilningarvitum. Þessa dagana eiga líka öll heimili að fá senda ávísun frá bókaútgefendum sem nýta má [...]
Þessa dagana smjúga vorhefti Barna og menningar eitt af öðru inn um bréfalúgur áskrifenda. Börn og menning er alþýðlegt fræðirit sem kemur út vor og haust og er gefið út af Íslandsdeild IBBY-samtakanna, sem eru samtök áhugafólks um víða veröld sem vill efla barnamenningu og ekki síst barnabókmenntir. Nýja heftið, sem er fjörutíu síður, er [...]
Undir lok jólabókavertíðarinnar í desember síðastliðnum setti ég upp bókmenntafræðingshattinn og mætti í huggulegan sjónvarpsþátt til að tjá áhorfendum hvað ég teldi áhugaverðustu bækur flóðsins. Vigdís – Kona verður forseti var einn þeirra þriggja bóka. Það er því til helberrar skammar að ég hafi ekki tekið mér tak og skrifað eitthvað um þá ágætu bók [...]