Bókatitlar ársins?

tálbeitaÍ gær var sagt frá því í vefútgáfu Independent að metfjöldi væri tilnefndur  í vali The Bookseller á einkennilegustu bókatitlum síðasta árs en listinn verður opinberaður 19. febrúar.  Meðal tilnefndra bóka eru  An Intellectual History of Cannibalism, Collectible Spoons of the Third Reich og Is the Rectum a Grave?

Fyrir jól vakti titillinn Tálbeita Satans (sem er einhverskonar sjálfshjálparbók hafi ég skilið  umræður á sjónvarpsstöðinni ÍNN rétt) athygli en að öðru leyti sitja nýlegir bókatitlar lítið í mér. Ef þið eigið uppáhaldstitla eða munið eftir einhverjum sérlega hallærislegum þá nefnið þá endilega, athugasemdakerfið er galopið.

Þórdís

8 Athugasemdir við Bókatitlar ársins?

  1. Benni's Gravatar Benni
    5. febrúar 2010 klukkan 11:30 | Permalink

    Það kom út bók fyrir jólin sem heitir „Spánar kóngurinn“ sem er mjög furðulegur titill.

  2. Þórdís's Gravatar Þórdís
    5. febrúar 2010 klukkan 11:36 | Permalink

    Í tveimur orðum? Hver er höfundurinn?

  3. Tóti's Gravatar Tóti
    5. febrúar 2010 klukkan 13:11 | Permalink

    Dómur um bókina:
    http://www.dv.is/kritik/2009/11/29/yfirgengileg-astarjatning/

    Titillinn Bankster er heldur ekki góður þótt að bókin kunni að vera það.

  4. GK's Gravatar GK
    5. febrúar 2010 klukkan 14:14 | Permalink

    Í Bankster gengur aðalpersónan líka í skrokk á manni sem nota orðið bankster yfir hans líka …

  5. Kristín Svava's Gravatar Kristín Svava
    5. febrúar 2010 klukkan 18:13 | Permalink

    Spánar kóngurinn er mögnuð, mæli með henni.

    Mér finnst titillinn á kínverska ljóðsafninu eftir Chu-i Po sem Vésteinn Lúðvíksson þýddi alveg sjúkt flottur: Brjálsemiskækir á fjöllum.

  6. 6. febrúar 2010 klukkan 00:07 | Permalink

    Hef ekki lesið Spánar kónginn en mér skilst að titillinn sé tilvísun í eitthvað málverk, og uppskipting orðsins sé þaðan komin.

  7. Tóti's Gravatar Tóti
    6. febrúar 2010 klukkan 13:35 | Permalink

    Ég fór að pæla í titlum síðustu ára (bæði á Íslenskum bókum og þýddum) en eftir að hafa pælt í þessu í tvo daga, þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að fáir eru minnisstæðir.

    Finnst samt að menn séu aðeins að missa sig í ljóðrænu í titlum eins og:

    Himininn yfir Þingvöllum, Síðustu dagar móðir minnar og Harmur englanna (sem ég hef ekki nennt að lesa, orðinn þreyttur á endurunnin Heinesen ljóðrænu) en sennilega má maður ekki tala svona illa um stórskáld þjóðarinnar.

    Fannst samt Rökkurbýsnir (sem kom út 2008?) flottur titill.

    Best að hætta að þusa hérna, áður en skáld og unnendur fagurbókmennta fara að henda í mig gömlum skóm.

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Höfundar

Erna Erlingsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Helga Ferdinandsdóttir
Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir
Þorgerður Elín Sigurðardóttir
Hilma Gunnarsdóttir
Guðrún Elsa Bragadóttir
Kristín Svava Tómasdóttir

Þú getur sent okkur póst á netfangið
bokvit -hjá- gmail.com