Uppáhaldselskendur bókmenntanna

frannyJ. D. Salinger dó í gær og minningargreinarnar poppa upp á bókmenntasíðum heimsins, til dæmis hér og hér.  Á þessu bloggi var minnst á Salinger í sumar, hér má lesa þá færslu en ég ætla ekki að bæta neinu sérstöku við um hann þó að hann hafi verið algjör dúndurhöfundur og ég bíði jafn spennt og hálfur lesheimurinn eftir að handritabunkarnir sem hann á að hafa skilið eftir sig komi út.  Sennilega hafa erfingjar Salingers nóg að rífast um í margar kynslóðir og enn seljast 200 þúsund eintök af Cathcer in the Rye árlega í Bandaríkjunum.

Mig langar hins vegar að stela hugmynd frá sænsku bókahórunum sem spyrja um uppáhaldsbókmenntapör lesenda og nefna sín eigin.  Hvaða skemmtilegum bókmenntapörum man fólk eftir á þessum fagra föstudegi? Ég sjálf  er eitthvað andlaus en man til dæmis eftir Franny og Zooey í samnefndri bók Salingers og Gilbert og Önnu í Grænuhíð.  Asnalegt par eru hins vegar Ragnheiður Birna og Jón Guðni í Þetta er allt að koma.

Þórdís

32 Athugasemdir við Uppáhaldselskendur bókmenntanna

  1. Gunnar Hrafn's Gravatar Gunnar Hrafn
    29. janúar 2010 klukkan 13:05 | Permalink

    Salander og Blomkvist.

  2. Þórdís's Gravatar Þórdís
    29. janúar 2010 klukkan 13:09 | Permalink

    Hommarnir í bókunum eftir Anne B Ragde eru skemmtilegt par.

  3. Gunnar Hrafn's Gravatar Gunnar Hrafn
    29. janúar 2010 klukkan 13:13 | Permalink

    Ég slysaðist einu sinni til að horfa á einn þátt í norska sjónvarpinu og hef eftir það minni en engan áhuga á því að lesa bækurnar hennar.

  4. 29. janúar 2010 klukkan 13:22 | Permalink

    Ég held mikið upp á Helene og Frank í 84 Charing Cross Road eftir Helene Hanff. Þau eru svo dásamlega bældar en fallegar sálir.

  5. HT's Gravatar HT
    29. janúar 2010 klukkan 13:30 | Permalink

    Gorodish og Alba voru fín, líka Carrot og Angua.

  6. gunn's Gravatar gunn
    29. janúar 2010 klukkan 13:33 | Permalink

    Vicomt de Valmont og Marquise de Merteuil

  7. Kristín í París's Gravatar Kristín í París
    29. janúar 2010 klukkan 13:40 | Permalink

    Ég ætlaði einmitt að segja Valmont og Merteuil, ferlega flott par. En ég vil ganga lengra og segja að öll sambönd Valmont séu spennandi, semsagt líka Valmont-Volanges og Valmont-Tourvel. Les liaisons dangereuses er náttúrulega tær snilld.
    Lólíta og Humbert Humbert er líka truflandi par.

  8. 29. janúar 2010 klukkan 13:56 | Permalink

    Ármann og Vildís eftir KG

  9. Halla Sverrisdóttir's Gravatar Halla Sverrisdóttir
    29. janúar 2010 klukkan 13:57 | Permalink

    Scarlett og Rhett. Hands down. Les Gone with the Wind minnst árlega. Og ekki voga ykkur að halda að ég sé að grínast!

  10. 29. janúar 2010 klukkan 14:53 | Permalink

    Chevalier de Mirvel og Eugénie úr La Philosophie dans le boudoir, sem einhvern tímann verður að gera kvikmynd úr sem gefur Les Liaisons dangereuses ekkert eftir.

  11. 29. janúar 2010 klukkan 15:06 | Permalink

    Mr. Darcy og fröken Elizabeth Bennet.

  12. 29. janúar 2010 klukkan 15:32 | Permalink

    Darcy og Elizabeth Bennet. Karitas og Sigmar. Heathcliff og Cathy.

  13. Kristín í París's Gravatar Kristín í París
    29. janúar 2010 klukkan 15:45 | Permalink

    Elías, ég þarf að tékka á þessari sem þú nefnir. Mér finnst mjög athyglisvert að enginn nefnir Rómeó og Júlíu, sem virtist augljósa svarið í byrjun. Best að líta yfir á sænsku hórurnar og skoða hvað er í boði þar.

  14. 29. janúar 2010 klukkan 15:59 | Permalink

    Orfeus og Evridís!

  15. Páll Ásgeir's Gravatar Páll Ásgeir
    29. janúar 2010 klukkan 16:27 | Permalink

    Salka og Steinþór

    Jón á Nautaflötum og Þóra í Hvammi

    Þórbergur og Margrét

  16. Þorgerður's Gravatar Þorgerður
    29. janúar 2010 klukkan 16:39 | Permalink

    Nancy Drew og Ned whatshisname

  17. Þórdís's Gravatar Þórdís
    29. janúar 2010 klukkan 16:39 | Permalink

    Nickerson Þorgerður!

  18. Þorgerður's Gravatar Þorgerður
    29. janúar 2010 klukkan 16:40 | Permalink

    og nota bene….það er ábyggilega búið að gera einhverja hressa klámmynd uppúr la philosophie dans le boudoir

  19. Þorgerður's Gravatar Þorgerður
    29. janúar 2010 klukkan 16:44 | Permalink

    Snúður og Snælda

  20. Þorgerður's Gravatar Þorgerður
    29. janúar 2010 klukkan 16:45 | Permalink

    Svalur og Valur

  21. Þórdís's Gravatar Þórdís
    29. janúar 2010 klukkan 16:47 | Permalink

    Gunnar og Njáll.
    Þetta er komið út í rugl.

  22. 29. janúar 2010 klukkan 19:54 | Permalink

    Ja hérna, ég hef mismælt mig. Ég ætlaði að segja Julien Sorel og Mathilde de La Môle.

  23. 29. janúar 2010 klukkan 20:03 | Permalink

    Karíus og Baktus. Fallegt samband.

  24. 29. janúar 2010 klukkan 20:08 | Permalink

    Watson og Holmes, sem virðist reyndar vera bara á annan veginn.

  25. Kristín í París's Gravatar Kristín í París
    29. janúar 2010 klukkan 20:25 | Permalink

    Fólk er ekki að taka þessu nógu alvarlega hérna. Það truflar mig.

  26. Tap's Gravatar Tap
    30. janúar 2010 klukkan 15:54 | Permalink

    Kristján B. og Gerður Kristný :)

  27. Þórdís's Gravatar Þórdís
    30. janúar 2010 klukkan 15:54 | Permalink

    Michael og Hanna í Lesaranum eftir Schlink ættu að vera á listanum.

  28. 31. janúar 2010 klukkan 00:49 | Permalink

    Annars er mitt uppáhald alltaf Ferdinand og Miranda.

  29. Þórdís's Gravatar Þórdís
    31. janúar 2010 klukkan 11:03 | Permalink

    Þau kannast ég ekkert við.

  30. 31. janúar 2010 klukkan 13:32 | Permalink

    Víst kannastu við þau. Sjeikspír, manstu? Besta leikritið hans?

  31. Þórdís's Gravatar Þórdís
    31. janúar 2010 klukkan 13:37 | Permalink

    Ég er vægast sagt illa að mér í verkum Sjeikspírs.

  32. 5. febrúar 2010 klukkan 11:39 | Permalink

    Benedick og Beatrice.

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Höfundar

Erna Erlingsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Helga Ferdinandsdóttir
Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir
Þorgerður Elín Sigurðardóttir
Hilma Gunnarsdóttir
Guðrún Elsa Bragadóttir
Kristín Svava Tómasdóttir

Þú getur sent okkur póst á netfangið
bokvit -hjá- gmail.com