Fæti brugðið fyrir Karen Blixen?

karen-blixenÁ vefsíðu Information má lesa umfjöllun um bók eftir fyrrverandi lektor í Árósum, Aage Jørgensen, sem kemur út í næstu viku. Bókin heitir ‘Nærved og næsten. Danske Nobelpristabere fra Brandes til Blixen – en dokumentation’. Blaðamaður Information er búinn að lesa bókina og gerir að umfjöllun hvers vegna Karen Blixen fékk aldrei Nóbel. Hann vitnar m.a. í Horace Engdahl fyrrverandi ritara Sænsku Akademíunnar, sem sagði það eina af fortíðarsyndum þeirrar klíku að hafa á sínum tíma sniðgengið Blixen. Það er óþarfi að endursegja greinina í Information, sem hér er hægt að lesa, en nærsýn augu mín runnu smávegis í kross þegar ég las að Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness hefðu fengið verðlaunin 1955 og það hefði staðið í vegi fyrir að Karen Blixen hlyti þennan mikla heiður. Hmmmmm?

Þórdís

6 Athugasemdir við Fæti brugðið fyrir Karen Blixen?

  1. Gunnar Hrafn's Gravatar Gunnar Hrafn
    20. janúar 2010 klukkan 09:34 | Permalink

    Mig hefur kannski dreymt það, en ég hélt reyndar að þetta væri viðurkennd söguskoðun í Danmörku.

  2. Gunnar Hrafn's Gravatar Gunnar Hrafn
    20. janúar 2010 klukkan 10:26 | Permalink

    Viðurkennd er kannski aðeins og sterkt til orða tekið, en mig minnir að ég hafi heyrt þessu fleygt einhvers staðar áður. En mig hefur áreiðanlega bara dreymt það … Eða heyrt Aage nefna það á kaffistofunni …

    SvD skrifaði annars um Blixen í janúarbyrjun

    Og hér um konur og Nóbel (en þið bókagellur hafið eflaust séð þetta).

  3. Dísa's Gravatar Dísa
    20. janúar 2010 klukkan 10:52 | Permalink

    En ekki halda danskir fræðimenn samt almennt að Gunnar hafi fengið Nóbel með Halldóri? Ætli þetta standi í bókinni eða sé misskilningur blaðamannsins?

  4. Gunnar Hrafn's Gravatar Gunnar Hrafn
    20. janúar 2010 klukkan 11:17 | Permalink

    Já, nú skil ég! Ætli hafi upphaflega átt að skipta verðlaununum á milli þeirra? Maður verður eiginlega að lesa bókina núna …

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Höfundar

Erna Erlingsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Helga Ferdinandsdóttir
Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir
Þorgerður Elín Sigurðardóttir
Hilma Gunnarsdóttir
Guðrún Elsa Bragadóttir
Kristín Svava Tómasdóttir

Þú getur sent okkur póst á netfangið
bokvit -hjá- gmail.com