Fín bók um frábæra söngkonu

Mér er sagt að ekki sé hægt að kaupa disk með tónlistarflutningi sænsku söngkonunnar Monicu Zetterlund í Reykjavík. Hins vegar er hægt að fá lánaða nýlega ævisögu hennar á bókasafni Norræna hússins og það hvet ég þá sem halda upp á Monicu til að gera (ég lofa að skila eintakinu um leið og safnið opnar á morgun).

Monica Zetterlund dó 67 ára gömul árið 2005 þegar kviknaði í íbúðinni hennar í Stokkhólmi. Frá því fyrir 1960 hafði hún verið ein af vinsælustu söngkonum Norðurlanda og þekkt langt út fyrir þau enda hafði hún unnið með mörgum af þekktustu djassistum heims; Stan Getz, Arne Domnérus, Bill Evans svo einhverjir séu nefndir.  Í Svíþjóð söng hún og lék í kabarettsýningum,  bíómyndum og sjónvarpsþáttum, meðal annars varð hún fræg sem sóknarhóran Ulrika í þáttunum um Vesturfarana, sem gerðir voru eftir verki Vilhelms Mobergs.

Í þessari fyrstu alvöru ævisögu Monicu, Enkel, vacker, öm (upphafsorð texta lagsins Monicas vals eftir Beppe Wolgers), eftir blaðamanninn Klas Gustafson er farið yfir ævi Monicu frá æskuárum hennar í Hagfors í Värmlandi og allt til dauða. Monica var það sem í Svíþjóð er kallað folkkär, þ.e. í meira lagi vinsæl. Hún var kornung einstæð móðir þegar hún söng sig inn í hjörtu fjölmargra Svía, sló í gegn í Danmörku og söng með frægum djassistum í New York.

Monica var margbrotin og mótsagnakennd manneskja. Hún átti í stöðugri baráttu við lélegt sjálfstraust, lifði á köflum hressilegu bóhemlífi, skipti um eiginmenn og sambýlinga oftar en tölu verður á komið og leyfði allskonar fólki að búa hjá sér og dóttur sinni í lengri eða skemmri tíma. Höfundurinn klippir saman búta úr viðtölum við Monicu sjálfa, vini hennar og dótturina Evu-Lenu, sem átti oft ekki sjö dagana sæla hjá móður sem ýmist var fjarverandi, full eða með heimilið fullt af gestum og endaði síðan sem einmana kona í hjólastól, sem fór sjaldan úr húsi. Út úr þessu klippiríi kemur ágætisbók, kannski dálítið sundurlaus á köflum en hún rennur annars vel og er svo áhugaverð að ég las síðurnar 350 nokkurnvegin í einum rykk.

Þórdís Gísladóttir

2 Athugasemdir við Fín bók um frábæra söngkonu

  1. GK's Gravatar GK
    15. janúar 2010 klukkan 09:18 | Permalink

    Takk kærlega fyrir þetta. Gaman að vita af áhugaverðum bókum í bókasafni Norræna hússins. Þar fékk ég einmitt lánaðar tvær bækur í gær, aðra eftir að Silja Aðalsteinsdóttir femínisti mælti með henni á Miðjunni, Vidunderbarn eftir Roy Jacobsen, og hina, Mjólkurglas eftir Herbjörgu Wassmo, vegna þess að ókunnug kona sem stödd var á safninu sagði mér að hún væri afbragð.

  2. 11. mars 2010 klukkan 00:50 | Permalink

    buy 150 tramadol shz doxycycline =[[ cialis and zoloft delayed ejaculation alternatives ytyr prednisone online 4794

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Höfundar

Erna Erlingsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Helga Ferdinandsdóttir
Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir
Þorgerður Elín Sigurðardóttir
Hilma Gunnarsdóttir
Guðrún Elsa Bragadóttir
Kristín Svava Tómasdóttir

Þú getur sent okkur póst á netfangið
bokvit -hjá- gmail.com