Monthly Archives: janúar, 2010

Segðu það með (stolnu) ljóði!

Mig minnir endilega að í Hvunndagshetju Auðar Haralds sé sagt frá manni sem féll fyrir bókahillu Auðar (bókahillur mínar eru þessa dagana í slíkum ólestri að ég legg ekki á mig að fara upp stigann og leita að bókinni). Littererar dömur eiga það örugglega líka til að falla fyrir bókahillum karlmanna. Sömuleiðis hefur ljóðaflutningur, að [...]

Uppáhaldselskendur bókmenntanna

J. D. Salinger dó í gær og minningargreinarnar poppa upp á bókmenntasíðum heimsins, til dæmis hér og hér.  Á þessu bloggi var minnst á Salinger í sumar, hér má lesa þá færslu en ég ætla ekki að bæta neinu sérstöku við um hann þó að hann hafi verið algjör dúndurhöfundur og ég bíði jafn spennt [...]

Íslensk prakkarabörn

Vakin er athygli á því að Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands stendur í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 28. janúar kl. 12:25 fyrir fyrirlestri sem Helga Birgisdóttir flytur í stofu 132 í Öskju (nýleg bygging í Vatnsmýri sem er þó að grotna niður). Fyrirlesturinn kallar Helga Að haga sér eins og stelpa: Stelpur [...]

Aukapersónur í eigin sögu: Enn er morgunn eftir Böðvar Guðmundsson

Ekki alveg ólíkt Vesturfarasögunum Híbýli vindanna og Lífsins tré þá er Enn er morgunn rammaskáldsaga. Benjamín Andrésson, ungur Reykvíkingur og góður Íslendingur, afkomandi Knudsen, Kohlhaas, Andersson – genafræðilega alls enginn Íslendingur en þó alíslenskur, segir söguna – uppúr sögum Evu ömmu og Tedda frænda, sem segja þessa sögu hvort á sinn sérstæða hátt. Benjamín veltir því [...]

Múmínálfar í sextíu og fimm ár

Árið 2010 er haldið upp á það víða að sextíu og fimm ár eru síðan fyrsta bókin um Múmínálfana kom út. Bókin heitir Småtrollen och den stora översvämningen og þar birtast í fyrsta skipti opinberlega Múmínsnáðinn og mamma hans. Þau voru pínulítið mjóleitari en síðar varð en annars sömu sætu mæðginin og við þekkjum [...]

„Ástin er lipur tígur …“

Käbi Laretei, konsertpíanisti fædd í Eistlandi og Ingmar Bergman, sænskur leikstjóri, hittust þegar þau voru í kringum fertugt. Käbi var gift og átti litla dóttur, Ingmar bjó með Bibi Andersson. Eftir nokkurn tíma skildu þau við makana, giftu sig og voru í hjónabandi í tíu ár (1959-1969). Þau eignuðust soninn Daniel en voru oft í [...]

Guðrún Elsa og Kristín Svava fara á fyrirlestur

Þegar við mættum upp í Humboldt-háskóla áttum við í fyrstu erfitt með að átta okkur á því hvar Orhan Pamuk væri nú eiginlega. Fljótlega urðum við þó varar við straum varalitaðra miðaldra kvenna sem voru háfleygar á svip, eins og eitthvað merkilegt væri í vændum. Við eltum þennan hóp, og viti menn, við fundum Nóbelsverðlaunahafann [...]

Hver skrifaði bækurnar eftir Stieg Larsson?

Enn eina ferðina er allt að verða tjúllað út af Stieg heitnum Larssyni. Vinur hans, Kurdo Baksi, gaf nýlega út bókina Min ven Stieg Larsson þar sem hann segir Stieg hafa verið meðalmenni í blaðamannastétt en sambýliskona Stiegs segir bókina óhróður og níð. Og ekki nóg með það, fyrrverandi kollegi Stiegs úr blaðamannastéttinni, Anders [...]

Satanismi fyrir börn

Hér hægra megin er krækja  á síðu með ljótum bókakápum. Á undirsíðu út frá þeirri síðu rakst ég á myndina hér að ofan sem er af kápu bókar sem kom út 1990 og heitir Don’t Make Me Go Back, Mommy: A child’s book about satanic ritual abuse. (Á Amazon-síðunni sem krækjan vísar á eru umræður [...]

Maðurinn sem talaði um bækur sem hann hafði ekki lesið

Einu sinni, löngu fyrir tíma Internetsins, var gjarna talað um kjölfræðinga. Þeim hópi tilheyrðu menn sem áttu að hafa lesið lítið meira en kili bóka en gátu samt rætt verkin af innlifun (ég man bara eftir karlmönnum sem áttu að vera kjölfræðingar). Til er einhverskonar blöffarahandbók í faginu eftir Henry Hichings, um hvernig maður ber [...]

Fæti brugðið fyrir Karen Blixen?

Á vefsíðu Information má lesa umfjöllun um bók eftir fyrrverandi lektor í Árósum, Aage Jørgensen, sem kemur út í næstu viku. Bókin heitir ‘Nærved og næsten. Danske Nobelpristabere fra Brandes til Blixen – en dokumentation’. Blaðamaður Information er búinn að lesa bókina og gerir að umfjöllun hvers vegna Karen Blixen fékk aldrei Nóbel. Hann vitnar [...]

Bang: fréttaritari, friðarsinni, femínisti …

Norrænar sjónvarpsstöðvar sýndu í fyrra heimildarmyndina „Bang och världshistorien“ sem fjallar um Barbro Alving.  Ég sá myndina fyrir tilviljun og varð dálítið heilluð af aðalpersónunni. Barbro Alving, sem fæddist 12. janúar 1909, var þekktur fréttaritari fyrir sænska blaðið Dagens Nyheter og blaðamaður á fleiri fjölmiðlum. Hún eyddi starfsævinni í að þeysa um heiminn og greina [...]

Fín bók um frábæra söngkonu

Mér er sagt að ekki sé hægt að kaupa disk með tónlistarflutningi sænsku söngkonunnar Monicu Zetterlund í Reykjavík. Hins vegar er hægt að fá lánaða nýlega ævisögu hennar á bókasafni Norræna hússins og það hvet ég þá sem halda upp á Monicu til að gera (ég lofa að skila eintakinu um leið og safnið opnar [...]

Margt skrítið í kýrhausnum…

Milli jóla og nýárs rak á fjörur mínar Handbók um hugarfar kúa eftir Bergsvein Birgisson. Þar fléttar höfundar saman persónulegri sögu ungs manns sem kemur heim úr námi erlendis frá og sögu kýrinnar í sögulegu samhengi. Gestur, sem er nýbakaður doktor í menningarfræðum, fær nefnilega ekkert að gera við sitt hæfi í markaðsbrjálæði hins íslenska [...]

Allt sem Harry Potter er ekki

Sögusvið bókarinnar Votlendi eftir Charlotte Roche, er sjúkrahúsherbergi þar sem hin átján ára Helen liggur vegna rassaðgerðar sem hún þurfti að gangast undir eftir ógætilegan rakstur. Við fylgjum henni og vangaveltum hennar alveg frá því fyrir aðgerðina og þar til henni er sagt að fara heim nokkrum dögum eftir hana. Á þessum tíma gerist ekki [...]



Höfundar

Erna Erlingsdóttir
Þórdís Gísladóttir
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Helga Ferdinandsdóttir
Sigfríður Gunnlaugsdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir
Þorgerður Elín Sigurðardóttir
Hilma Gunnarsdóttir
Guðrún Elsa Bragadóttir
Kristín Svava Tómasdóttir

Þú getur sent okkur póst á netfangið
bokvit -hjá- gmail.com