Monthly Archives: desember, 2009
Hinn nýi Þórbergur – Um ÞÞ í forheimskunarlandi eftir Pétur Gunnarsson
„Mér er hulið hvernig hættan á að fá yfir sig ævisöguritara hefur ekki fengið neinn ofan af því að eiga ævi,“ er setning sem Pétur Gunnarsson vitnar til eftir bölsýnishöfundinum Cioran undir lok seinna bindis bókar sinnar um Þórberg Þórðarson. Pétur bætir við að það hafi lengi verið talinn tvíverknaður að rita ævisögu Þórbergs – [...]
Auður
Ég hef verið aðdáandi Vilborgar Davíðsdóttur frá því ég sem unglingur las bækurnar um ambáttina Korku – Við Urðarbrunn (1993) og Nornadóm (1994). Það er á fárra færi að skrifa sögulegar skáldsögur sem eru í senn lifandi og trúar heimildum en þetta getur Vilborg. Hafandi nýlega endurnýjað kynnin við Njálu þar sem Auður Djúpúðga kemur [...]
Lesist í einum rykk
Kate Atkinson er mikill snillingur og jafnvel myndi ég segja að hún væri ein af mínum uppáhaldsskáldkonum. Hún hóf feril sinn fagurbókmenntameginn við borðið og hlaut mikið lof fyrir bækur eins og Behind the Scenes at the Museum (1995) og Emotionally Weird (2000). Engu að síður hóf hún fyrir nokkrum árum að skrifa reyfara og [...]
“… hún hefði getað sparkað í alla þjóðina”: Karlsvagninn eftir Kristínu Marju
Karlsvagninn er bók um sálarástand íslenskrar þjóðar, um þjóð í fjötrum hugarfars. Geðlæknirinn Gunnur segir okkur söguna : setur eigið líf á svið fyrir unglingsstúlkuna Hugrúnu Lind dóttur Sunnu Lindar innanhússhönnuðar – kryfur fortíð sína, skoðar hana og ber saman við hegðun og viðbrögð Hugrúnar Lindar (Hindar). Hlutverk Hindar í bókinn er í raun að [...]
„Læfseiver“
Þegar ég hafði jafnað mig á því að á blaðsíðu 8 kemur fyrir harðhent og óhugnanleg hjúkrunarkona að nafni Maríanna var Síðustu dagar móður minnar eftir Sölva Björn Sigurðsson sannkallaður gleðigjafi. Það er sjaldan sem íslenskir rithöfundar þora að vera svona fyndnir (ef frá er talin Auður Haralds) en ég hló margoft upphátt yfir gríðarlega [...]
Doris Lessing og nóbelinn
Svona í jólabókaflóðinu miðju, þegar maður ætti auðvitað frekar að skrifa háfleyga bókadóma um nýútkomnar íslenskar bækur og dásama sæta og skemmtilega höfunda í hástert þá fann ég allt í einu hjá mér löngun til að lesa aftur Nóbelsræðuna hennar Dorisar Lessing frá því í desember 2007. Í þessari ræðu, einsog almennt í því sem [...]
Gefins bækur með reykingalykt
Í fyrradag leit ég inn í Góða hirðinn en þá var þar jólahreinsunarátak í gangi og allar bækur gefins. Það er ekki eins og bækur kosti almennt stórar upphæðir í nytjamarkaðinum en engu að síður var þarna fólk með fullar körfur, t.d. flíspeysumaðurinn sem selur í Kolaportinu og tvær konur sem hrúguðu á sig ástarsögum. [...]
Allsberar bókahillur!
Ónefndur forelggjari sendi okkur þessa mynd af náttúrulegustu bókahillum sem hægt er að hugsa sér. Þvílík fegurð!
Sólstjakar
Mikið er ég ánægð með að fá íslenska glæpasögu þar sem mengi grunaðra er skýrt afmarkað frá byrjun. Hérlendis hefur verið skortur á tilbrigðum við þetta klassíska stef, það hefur meira að segja verið leiðindaósiður hjá sumum höfundum að kynna morðingjann seint til sögunnar eða draga upp úr hatti sínum veigalitla aukapersónu þegar leysa þarf [...]
Raddir frá Hólmanesi
Raddir frá Hólmanesi er nýtt safn ellefu smásagna eftir Stefán Sigurkarlsson. Höfundurinn hefur áður sent frá sér nokkrar bækur, þar á meðal Hólmanespistla árið 1995, sem ég geri af augljósum ástæðum ráð fyrir að kallist á við þá bók sem hér um ræðir, en því miður hef ég ekki lesið Hólmanespistla (því mun ég hins [...]
Himininn yfir Þingvöllum
Steinar Bragi vakti nokkuð verðskuldaða athygli fyrir ári síðan með skáldsögunni Konur sem var nýverið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Íslands hönd.
Nú er hinsvegar komin út bókin Himininn yfir Þingvöllum sem inniheldur þrjár nóvellur sem tengjast í sjálfu sér ekki að öðru leyti en því að þær fjalla allar um dauðann í einhverjum skilningi. Munu lesendur heillast [...]
Bankster
Ég var að ljúka við Bankster eftir Guðmund Óskarsson. Bókin höfðaði engan veginn til mín en ég þrælaði mér í gegnum hana alla í þeirri von að úr rættist, sem því miður ekki varð. Sagan fjallar um Markús og Hörpu, unga bankastarfsmenn sem misstu vinnuna í fyrrahaust. Markús skrifar dagbók í atvinnuleysinu og það er [...]
Bragi Ólafsson – fucking hilarious
Scott Pack, sem heldur úti bókablogginu Me and My Big Mouth ( við erum með krækju á síðuna einhversstaðar hérna hægra megin), er heldur betur hress með Gæludýr Braga Ólafssonar. Hérna er krækja á færslu um bókina sem skrifuð var í fyrradag. Scott er að springa af hrifningu, hann segir I think it is fucking [...]
Prófarkalestur
Blaðakona á Politiken skrifaði í fyrradag pistil um prófarkalestur á dönskum bókum. Danskir gagnrýnendur hafa lengi kvartað yfir hroðvirknislegum prófarkalestri nýrra danskra bóka og krafist betri vinnubragða. Forleggjarinn Johannes Riis hjá Gyldendal skýrir slakan prófarkalestur með því að það sé hreinlega svo erfitt að finna góða prófarkalesara í Danmörku. Allir prófarkalesarar forlagsins þurfa að taka [...]
Í fótspor afa míns
Í fótspor afa míns er miðjubók í endurminningaþríleik Finnboga Hermannssonar sem ólst upp á Njálsgötunni upp úr seinna stríði. Við mamma vorum báðar hrifnar af fyrstu bókinni, Í húsi afa míns, sem kom út i fyrra (ég held að mamma sé að endurlesa hana núna) og þessi er líka alveg ljómandi. Ég er logandi af [...]
Fimmtán tilnefningar
- – – – – – – – – – – – – – – – -
Það gengur á með tilnefningum í dag. Rétt í þessu var tilkynnt hvaða þýðendur og höfundar eru tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna (sem Bandalag þýðenda og túlka veitir) og Íslensku bókmenntaverðlaunanna (sem Félag íslenskra bókaútgefenda stendur fyrir). Druslubókadama lagði við [...]
Ævisaga – skáldævisaga – endurminningar – sjálfsævisaga …
Fyrir þessi jól koma að vanda út fjölmargar ævisögur og endurminningabækur af ýmsu tagi og má búast við að einhverjar þeirra nái umtalsverðum vinsældum. Ævisögur og endurminningabækur eru ekki auðskilgreinanleg bókmenntagrein og fræðimenn eru heldur betur ekki á einu máli um flokkun eða hugtakanotkun þegar um slík verk er rætt .
Stundum ritar aðalpersónan eigin endurminningar [...]
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs – tilnefningar
Nú er búið að opinbera hvaða bækur eru tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2010. Í lok mars verður ákveðið hver fær verðlaunin en þau verða afhent á fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík eftir tæpt ár, í nóvemberbyrjun 2010, þannig að það er nægur tími til að kynna sér bækurnar. Tvær ljóðabækur og níu skáldsögur eru tilnefndar að [...]
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna 2009
Í dag, þriðjudaginn 1. desember, efna Bandalag þýðenda og túlka og Félag íslenskra bókaútgefenda til sameiginlegrar athafnar þar sem tilkynnt verður um tilnefningar til verðlauna fyrir þýðingar, fagurbókmenntir og fræðirit og bækur almenns efnis árið 2009. Verðlaunin sjálf verða veitt á degi bókarinnar 23. apríl 2010. Athöfnin hefst klukkan 17:30 og það verður áreiðanlega útvarpað [...]
- Aftur á forsíðu
