Monthly Archives: júlí, 2009
Freydís í bókahillunni
Og enn berast okkur bréf og svo dásamlega fallegar myndir að hörðustu töffarar klökkna.
Sælar dömur!
Bókahillusyrpan ykkar er ákaflega skemmtileg. Hér er svolítið spin á hana: Við hjónin eigum bæði við það að stríða að kunna okkur ekki hóf þegar kemur að bókasöfnun (enda eigum við bæði starfsferla að baki á bókasöfnum) og þegar fór [...]
Enn af bókahillum – bækur eftir litum
Lesendur síðunnar halda áfram að kæta okkur og gleðja með bréfum og myndum af bókahillunum sínum. Við erum að sjálfsögðu afar ánægðar með þetta. Þið sem eruð í stuði megið gjarna senda okkur línu á bokvit@gmail.com.Hér fyrir neðan er nýjasta bréfið og myndir fylgja líka
Ég uppgötvaði nýlega síðuna ykkar og núna er ég [...]
Landnemabókmenntir
Sem barn las ég um Láru litlu Ingalls og ævintýri hennar á gresjunni. Sjónvarpsþættirnir Húsið á sléttunni voru svo sýndir á Rúv og það var hart hjarta sem ekki bifaðist með sorgum og sigrum Ingalls fjölskyldunnar þar sem þau reyndu að temja bandaríska náttúru um miðbik 19. aldar. Bækurnar og enn frekar þættirnir voru sveipuð [...]
Skýjað og dálítil súld en sumstaðar þokubakkar…
Til er sport sem á ensku kallast cloudspotting (skýjaskoðun?). Um sportið hafa verið skrifaðar bækur og félög stofnuð til heiðurs því. Dýrkun sólarinnar er stórhættulegt sport eins og allir vita, hún veldur krabbameini, stuðlar að ranghugmyndum ( t.d. um að dökkbrún og leðurkennd húð fari vel með hvítum strípum og tribal húðflúrum) og svo eykur [...]
Klósettbókahillur Kristínar Parísardömu
Ég bý, ásamt eiginmanni og tveimur börnum, í 69 m2 íbúð í úthverfi nálægt París. Þegar við fluttum í þessa íbúð fyrir fimm árum síðan, þurftum við heldur betur að grisja bókaeign okkar, aðallega vegna þess að í íbúðinni er ekkert sérlega mikið af veggjaplássi fyrir bókahillur. Við vorum snögg að sjá möguleikann á að [...]
Frank McCourt er dáinn
Í dag, þegar nákvæmlega fjörutíu ár eru síðan Buzz Aldrin og Neil Armstrong skildu fyrstir manna eftir sig fótspor í auðninni á tunglinu, segja bókmenntasíður víðsvegar frá því að írski rithöfundurinn Frank McCourt hafið hafi dáið í gær í New York.
Frank McCourt er einn þó nokkurra írskra höfunda sem hafa glatt mig með verkum sínum, [...]
Lifað og leikið – upphaf garðræktar Reykvíkinga
Í ævisögu sinni Lifað og leikið sem kom út árið 1949, rekur leikkonan Frú Eufemia Indriðadóttir Waage minningar sínar. Hún var fædd á Laugavegi 5 árið 1881 og ólst upp og bjó alla tíð í Reykjavík en Eufemia dó árið 1960. Bókin er ágætislesning um bæjarbrag og lifnaðarhætti í Reykjavík á uppvaxtarárum Eufemiu á [...]
Sumar bækur sökka
Carlos Ruiz Zafón. The Angel’s Game. Weidenfeld & Nicolson: London, 2009.
Á síðustu mánuðum hef ég lesið nokkrar bækur sem ég sé eiginlega eftir að hafa lesið. Hin óbærilega Sjöjungfrun Camillu Läckberg, væmna veimiltítan Tony Parsons og vellan hans My Favourite Wife, hryllingshroðbjóðurinn um Kevin litla eftir Lionel Shriver (sem ég skipti reyndar um skoðun á, [...]
Blóðdropinn
Líkt og kemur fram á Bókmenntavef Borgarbókasafnsins hlaut Ævar Örn Jósepsson Blóðdropann, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir örfáum dögum. Blóðdropann hlaut höfundurinn fyrir bókina Land tækifæranna og verður bókin einnig framlag Íslands til Glerlykilsins árið 2010. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráherra sem einnig sat í dómnefndinni, afhenti Ævari verðlaunin.
Nokkrar druslubókadömur eru miklir aðdáendur glæpasagna Ævars Arnar og [...]
Sumarbók Tove Jansson
Margir vita ekki að Tove Jansson, höfundur bókanna um Múmínálfana og alla furðulegu vini þeirra, skrifaði ekki bara bækur fyrir börn (reyndar hugsaði hún Múmínálfabækurnar ekki síður sem lesningu fyrir fullorðna). Hún skrifaði líka um tug ágætra bóka fyrir fullorðna, sem hafa fallið í skuggann vegna gífurlegra vinsælda Múmínálfabókanna.
Ég held mjög mikið upp [...]
Hvað lesið þið á klósettinu?
Pistilinn hér að neðan sendi Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, gestapenni Druslubókabloggsins, okkur og við kunnum henni ástarþakkir fyrir.
Allir kannast nú við klósettlitteratúr. En það kallast þær bókmenntir sem fólk tekur með sér á klósettið, eða geymir jafnvel þar og grípur til þegar það vill gera stykki sín (hefur e.t.v. harðlífi eða vill hreinlega bara sitja einhvers [...]
August Strindberg og garðræktin
Rithöfundurinn August Strindberg (1849-1912) var eirðarlaus maður, sífellt á ferð og flugi og átti heimili á óteljandi stöðum. Flestir þekkja vísast Strindberg aðeins af ritstörfunum, en hann var líka mikill áhugmaður um garðrækt og hvar sem hann dvaldi reyndi hann alltaf að koma sér upp skika sem hann gat ræktað. Væri garðskiki ekki tiltækur var [...]
Bókabetrekk
Ég var að ljúka við að lesa hnausþykkan doðrant eftir einn af höfundunum sem kemur á Bókmenntahátíð í haust. Það er Norðmaðurinn Johan Harstad sem um ræðir og bókin heitir Buzz Aldrin, hvor ble det av deg i alt mylderet? en ég tók að mér að skrifa smágrein um hana og auk þess ætla [...]
Lesandinn Michael Jackson
Á vefsíðu tímaritsins LA Weekly (ég les það vefrit auðvitað reglulega) má lesa viðtal við einn lögfræðinga Michaels heitins Jacksons, Bob Sanger heitir sá, þar sem fram kemur að Michael var meiri bókamaður en margir myndu kannski ætla. Heima hjá popparanum í Neverland voru meira en tíuþúsund bækur og lögfræðingurinn segir poppstjörnuna hafa lesið heilmikið. [...]
Holden Caulfield og Einar Áskell
Í síðustu viku vann rithöfundurinn J. D. Salinger fyrstu lotuna í málaferlum gegn Fredrik Colting, sem hefur skrifaði bókina 60 Years Later. Coming through the Rye, þar sem aðalpersónan er Holden Caulfield, sem aftur er aðalpersóna bókarinnar gömlu, The Catcher in the Rye, eftir Salinger. Útgáfa bókarinnar verður sem sé stöðvuð í Bandaríkjunum. Bókin er þó [...]
Ljóðabækur á faraldsfæti
Lesendur bloggsins gleðja okkur og ykkur með myndum og bréfum. Anna Hallgrímsdóttir sendi mynd og krækju frá farandbókasafni:
Sælar bókadömur.
Þetta er ekki mín bókahilla, ja þetta er ekki alveg bókhilla per se, heldur farandsbókasafn. The itinerant poetry library.Bókasafnið hefur ferðast vítt og breitt og þannig hafa ólíklegustu aðilar fengið að njóta góðs af brennandi áhuga bókasafnsfræðingsins [...]
Hilla Eiríks Arnar
Skáldið og þýðandinn Eiríkur Örn Norðdahl sendi síðunni mynd af bókahillunni sinni og bréf með. Við ákváðum að birta það bara í heilu lagi því það er svo skemmtilegt:
Hæ.
Það er sosum ekkert merkilegra við þessa hillu en hverja aðra, en ég er andvaka og datt í hug að senda þessa mynd, fyrst ég á hana. [...]
litabækur
Kristín Viðarsdóttir á Borgarbókasafninu sendi tvær myndir af bókum sem raðað er eftir lit. Neðri myndin er af regnbogaútstillingu sem var á Hinsegin dögum en efri myndin er af bleikum bókum sem stillt var upp 19. júní.
Er einhver sem les þetta sem raðar bókunum sínum eftir lit?
Bakaradrengurinn Proust og litflokkun bóka
Marcel Proust var einu sinni í selskap þar sem menn voru að ræða hvað þeir vildu vera í lífinu ef þeir væru ekki það sem þeir væru. Proust sagði að ef hann væri ekki rithöfundur þá væri hann bakari, honum fannst svo fögur tilhugsun að hnoða deig og brauðfæða fólk. Þetta fannst einhverjum mjög fyndið, [...]
- Aftur á forsíðu
